fbpx

Fílakaramellubrownies

Fílakaramellur eru auðvitað löngu búnar að fanga hug og hjörtu landsmanna og þær má svo sannarlega nota í annað en að borða þær beint úr bréfinu.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 210 g smjör
 220 g suðusúkkulaði
 300 g sykur
 4 stk egg
 100 g hveiti
 40 g Cadbury bökunarkakó
 ½ tsk salt
 100 g Toblerone
 Bláber og flórsykur til skrauts
Fílakaramellukrem
 300 g Fílakaramellur
 6 msk rjómi

Leiðbeiningar

1

Hitið ofninn í 180°C.

2

Bræðið smjör og suðusúkkulaði í vatnsbaði og leyfið hitanum aðeins að rjúka úr.

3

Þeytið egg og sykur þar til létt og ljóst.

4

Bætið súkkulaðiblöndunni saman við í mjórri bunu og blandið vel.

5

Sigtið hveiti, kakó og salt yfir skálina og vefjið saman við með sleif.

6

Saxið Toblerone gróft niður og vefjið að lokum saman við deigið.

7

Klæðið ferkantað form (um 25 x 25 cm) með bökunarpappír og spreyið vel með matarolíuspreyi.

8

Hellið deiginu í formið og bakið í um 40 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á, ekki blautu deigi.

9

Kælið alveg í forminu og hellið þá fílakaramellukreminu yfir, kælið aftur og skerið síðan niður í teninga og skreytið með
bláberjum og flórsykri.

Fílakaramellukrem
10

Bræðið saman í potti við miðlungshita þar til karamellurnar hafa bráðnað, hrærið vel í allan tímann.

11

Hellið yfir kökuna í forminu, kælið þar til kremið hefur þykknað, lyftið þá upp úr forminu og skerið kökuna niður í teninga.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…