fbpx

Dýrindis gamaldags ömmusnúðar í útileguna

Þessi uppskrift er löngu orðin klassík en það er orðið talsvert langt síðan ég hef bakað þessa snúða. Þetta eru þessir stökkari og geymast vel í loftþéttu boxi, eru því tilvaldir í útileguna eða fótboltamótið. Það er alls ekkert verra að pensla smá súkkulaði yfir nokkra! Þeir eru frekar fljótlegir þar sem það þarf ekkert að hefa þá. Ég nota hrásykurinn frá Rapunzel í snúðana en mér finnst hann gefa bakkelsi eitthvað bragð sem næst ekki með venjulegum hvítum sykri. Að auki er hann lífrænn sem mér finnst skipta heilmiklu máli.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 500 g hveiti
 200 g Cristallino hrásykur frá Rapunzel
 250 g mjúkt smjör
 3 stk egg
 1 tsk lyftiduft
 ½ tsk hjartarsalt
 80 g Cristallino hrásykur
 1 msk kúfuð msk kanill

Leiðbeiningar

1

Setjið öll hráefnin (nema kanil og 80g hrásykur) í hrærivél og hrærið saman með káinu þar til deigið er orðið vel samlagað.

2

Mótið það aðeins í ferning og kælið í að minnsta kosti 30 mín ef þið getið.

3

Setjið deigið á hveitistráð borð og fletjið út með kökukefli. Hægt er að skera kantana svo að snúðarnir verði jafnari en ég nenni því aldrei svo þeir verða bara fallega ljótir hjá mér.

4

Blandið 80g af hrásykri og kanil saman og stráið á útflatt deigið. Rúllið upp frá langhliðinni og skerið í rúmlega 1cm breiðar sneiðar. Hitið ofninn í 190°C blástur. Raðið snúðunum á plötu og stráið aðeins af kanilsykri yfir.

5

Bakið í ca. 25 mín eða þar til þeir eru orðnir gylltir.

Uppskrift eftir Völlu á GRGS.is

Matreiðsla, MatargerðMerking

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…