fbpx

Bragðmiklar og einfaldar Madras Naan snittur

Þessar snittur eru ofur einfaldar en jafnframt mjög bragðgóðar og smart á veisluborðið. Þær henta grænmetisætum vel þar sem þær innihalda ekkert kjöt. Við styttum okkur leið með dásamlegu Patak’s naan brauðunum og kryddmauki frá Patak’s. Þessar snittur eru ofur einfaldar en jafnframt mjög bragðgóðar og smart á veisluborðið. Þær henta grænmetisætum vel þar sem þær innihalda ekkert kjöt. Við styttum okkur leið með dásamlegu Patak’s naan brauðunum og kryddmauki frá Patak’s. Þessar verðið þið að prófa!

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 2 tilbúin Naanbrauð frá Patak's - plain
 2 msk hvítlauksolía
 1 tsk kókosolía
 1 poki vegan kjúklingastrimlar eða um 320g
 3 msk Madras spice paste frá Patak's
 1 dós Oatly sýrður rjómi + auka til þess að setja ofan á snitturnar
 Kirsuberjatómatar eftir smekk
 Ferskt kóríander
 Salt og pipar eftir smekk

Leiðbeiningar

1

Afþýðið vegan kjúklinginn (allt í lagi að það sé enn smá frost í honum), skerið í litla bita. Steikið hann upp úr kókosolíunni þar til hann fer að brúnast. Bætið Madras kryddmaukinu saman við ásamt Oatly sýrða rjómanum, saltið og piprið eftir smekk.

2

Hitið grillið í ofninum í 230°C. Skerið naan brauðin í 8 hluta, penslið með hvítlauksolíunni og setjið á ofngrind. Grillið í 2-3 mín þar til brauðin eru farin að brúnast. Fylgist vel með svo brauðin brenni ekki en þau geta verið fljót að brúnast.

3

Skerið tómatana í 4 hluta. Takið brauðin út og setjið um 1 - 2 msk af madras blöndunni ofan á hverja snittu. Toppið með oatly sýrðum rjóma, kirsuberjatómötum og kóríander.

Uppskrift eftir Völlu á GRGS.is

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
Heimagert falafelFalafel er eitthvað sem flestir þekkja og hafa smakkað. Falafel eru bollur úr kjúklingabaunum sem eru einar af mínum uppáhaldsbaunum.…
MYNDBAND
LinsubaunahummusLinsubaunir eru fullar af vítamínum og steinefnum og auðga mataræði þitt með hollum skammti af jurtaprótíni og trefjum.