fbpx

BBQ Chilli svínarif með sumarsalsa

Þrátt fyrir að veðrið þessa dagana minni fremur á haust en sumar víða á landinu má alltaf elda sumarlegan mat og fá með því sól í hjarta! Þessi réttur er sannarlega einn af þeim og þessi rif eru þau allra bestu!

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Svínarif uppskrift
 4 stk óelduð svínarif
 Steikarkrydd
 1 stk stór steikarpoki (t.d kalkúna)
 Heinz BBQ chilli sósa
Sumarsalsa uppskrift
 1 stk rauð paprika
 1 stk appelsínugul paprika
 2 stk ferskur maís
 ¼ vorlaukur (saxaður smátt)
 3 stk tómatar (kjarnhreinsaðir og skornir smátt)
 1 stk avókadó (skorið í teninga)
 1/2 lime safinn
 2 msk saxað kóríander

Leiðbeiningar

Svínarif
1

Hitið ofninn 150°C.

2

Kryddið rifin vel beggja megin (ég notaði salt, pipar, papriku og Bezt á allt krydd í bland).

3

Komið þeim fyrir í steikarpoka og lokið vel.

4

Hægeldið rifin í pokunum í 1,5 klst, takið þau þá út, opnið pokann og leyfið hitanum aðeins að rjúka úr.

5

Penslið örþunnu lagi af BBQ chilli sósu á rifin beggja megin og grillið á vel heitu grilli skamma stund (þetta gert til þess að fá stökka húð á kjötið).

6

Takið af grillinu og penslið 1-2 x sósu á báðar hliðar að nýju, skerið niður, stráið smá sesamfræjum yfir til skrauts og berið fram með sumarsalsa. Einnig er gott að hafa franskar kartöflur með.

Sumarsalsa
7

Grillið paprikurnar í heilu lagi á meðalheitu grilli í 10-15 mínútur, snúið reglulega og leyfið þeim síðan að kólna niður.

8

Takið maísinn úr hýðinu og sjóðið í um 5 mínútur, þerrið og grillið í nokkrar mínútur allan hringinn til að fá smá grilláferð á þá.

9

Flettið síðan skinninu/ysta laginu af paprikunum af og takið kjarnann/steinana úr, skerið næst í litla bita.

10

Skafið baunirnar af maísnum og bætið í skál með paprikunum.

11

Setjið næst allt annað út í og blandið varlega saman, njótið með nýgrilluðum rifjum.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir