Tilvalið í jólagjafir eða sem snarl á aðventunni.

Uppskrift
Hráefni
400 g blandaðar hnetur frá Rapunzel (hesli, brasilíu, kasjúhnetur og möndlur)
2 eggjahvítur
1 tsk vanilludropar
125 g púðursykur
2 tsk malaður engifer (kryddið)
¼ tsk chiliduft
¼ tsk múskat
1 tsk kanill
Leiðbeiningar
1
Hitið ofn í 180°c.
2
Þeytið eggjahvítur saman þar til þær eru nánast stífþeyttar og hrærið þá vanillunni varlega saman við.
3
Blandið púðursykri og kryddum saman í aðra skál. Hellið hnetunum út í eggjahvíturnar og veltið þeim vel.
4
Hellið því næst hnetublöndunni út í skálina með sykrinum og blandið vel saman.
5
Hellið hnetunum á bökunarpappírsklædda plötu og dreifið vel. Bakið í ofni í ca. 20 mín og látið kólna á plötunni.
Uppskrift frá GRGS.
Hráefni
400 g blandaðar hnetur frá Rapunzel (hesli, brasilíu, kasjúhnetur og möndlur)
2 eggjahvítur
1 tsk vanilludropar
125 g púðursykur
2 tsk malaður engifer (kryddið)
¼ tsk chiliduft
¼ tsk múskat
1 tsk kanill