Frábærar fylltar kartöflur sem nýtast í máltíð eða sem meðlæti.

Uppskrift
Hráefni
4 bökunarkartöflur
1/6 biti af blaðlauk
2 msk rifinn cheddar ostur
1 msk sinnep classic frá Lehnsgaard
1 msk ólífuolía frá Filippo Berio
5 dropar Tabasco® habanero sósu
1/2 sítróna, safi og börkur
gróft sjávarsalt og nýmalaður pipar
10 gr steinselja
Leiðbeiningar
1
Setjið ögn af olíu og sáldrið grófu salti á kartöflurnar og nuddið hýðið vel. Pakkið þeim svo inn í álpappír og grillið í 45 mínútur á grillinu.
2
Saxið blaðlauk og steinselju og blandið öllu hráefni saman í skál.Þegar kartöflurnar eru klárar, skerið þá rauf í miðjuna á þeim, skafið kartöflukjötið innan úr hýðinu og hrærið saman með ostinum og öðru hráefni sem er upptalið hér að ofan.
3
Setjið fyllinguna aftur ofan í hýðið og berið fram.
MatreiðslaGrænmetisréttir, Grillréttir, Meðlæti
Hráefni
4 bökunarkartöflur
1/6 biti af blaðlauk
2 msk rifinn cheddar ostur
1 msk sinnep classic frá Lehnsgaard
1 msk ólífuolía frá Filippo Berio
5 dropar Tabasco® habanero sósu
1/2 sítróna, safi og börkur
gróft sjávarsalt og nýmalaður pipar
10 gr steinselja