Kjúklingaréttur sem getur ekki klikkað.

Uppskrift
Hráefni
900 g úrbeinuð kjúklingalæri frá Rose Poultry
maldon salt
grófmalaður svartur pipar
2 tsk þurrkuð basilika
120 g mozzarella ostur (kúlan í bláu pokunum)
ca 15 g fersk basilika
7 sneiðar beikon eða sem samsvarar fjölda kjúklingalæra
1 dós 18% sýrður rjómi (180 g)
100 g Philadelphia hreinn rjómaostur
1 dl vatn
2 1/2 msk sojasósa
Leiðbeiningar
1
Ofninn er stilltur á 225 gráður við undir- og yfirhita. Kjúklingalærin eru afþýdd og krydduð með salti, pipar og basiliku kryddi. Mozzarella osturinn er skorin í jafn margar sneiðar og kjúklingalærin segja til um. Ein sneið af mozzarella osti ásamt blöðum af basiliku eftir smekk eru lögð inn í hvert læri.
2
Þeim er svo lokað með því að vefja beikonsneið utan um lærið. Þau eru því næst sett í eldfast mót með samskeitin niður.
3
Sýrðum rjóma, rjómaosti, vatni og soyjasósu er hrært saman og hellt í formið. Bakað í ofni við 225 gráður í um það bil 30 mínútur eða þar til kjúklingurinn er tilbúinn og beikonið hefur tekið góðan lit.
4
Borið fram með hrísgrjónum eða kúskúsi og fersku salati.
Uppskrift frá Dröfn á Eldhússögum.
MatreiðslaKjúklingaréttir
Hráefni
900 g úrbeinuð kjúklingalæri frá Rose Poultry
maldon salt
grófmalaður svartur pipar
2 tsk þurrkuð basilika
120 g mozzarella ostur (kúlan í bláu pokunum)
ca 15 g fersk basilika
7 sneiðar beikon eða sem samsvarar fjölda kjúklingalæra
1 dós 18% sýrður rjómi (180 g)
100 g Philadelphia hreinn rjómaostur
1 dl vatn
2 1/2 msk sojasósa