fbpx

Hafraklattakökur með karamellusúkkulaði

Það er til margt óhollara en þessar kökur en ég reyndi að hafa hráefnið sem hollast með dásamlegu vörunum frá Rapunzel.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 125 g brætt smjör
 1 stk Krukka möndlu Tonka smjör frá Rapunzel
 140 g hrásykur (notaði Rapunzel)
 100 g púðursykur
 1 stk egg
 2 stk eggjarauður
 1 tsk vanilludropar
 120 g fínt spelt
 ½ tsk salt
 150 g hafrar (ekki grófa)
 100 g karamellusúkkulaði frá Rapunzel

Leiðbeiningar

1

setjið brætt smjörið, tonkasmjörið, sykur, egg, eggjarauður og vanilludropa saman í skál og hrærið vel með sleif

2

Bætið næst spelti, höfrum og salti út í og hrærið vel saman

3

Skerið karamellusúkkulaðið smátt niður og bætið út í skálina og hrærið létt saman

4

Setjið bökunarpappír á plötu og mótið kúlur með ísskeið c.a 2-3 msk ef þið eigið ekki ísskeið og mótið kúlu á stærð við borðtennisbolta, hafið gott bil á milli til að þær leki ekki saman í ofninum

5

Bakið við 185 °C blástur í 10-13 mínútur, styttri tímann ef þið viljið hafa þær svona seigar inn að miðju

6

Athugið að þegar þær koma úr ofninum gætu þær virst hráar en eru það ekki, þær halda áfram að bakast ofan á plötunni en mikilvægt er að láta þær standa á heitri plötunni í eins og um 10 mín áður en þær eru teknar af

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…