Yfir þessari köku er vetrarlegur blær, blanda af góðum kryddum og hnetum sem yljar okkur á köldum dögum.

Uppskrift
Hráefni
1/2 bolli Cristallino sykur frá Rapunzel
1/2 bolli Rapadura hrásykur frá Rapunzel
2 bollar Kornax hveiti
2 tsk lyftiduft
2 tsk kanill
2 tsk negull
1 tsk engifer
2 stór egg
1 dl jurtaolía
200ml mjólk
1/2 bolli saxaðar pekanhnetur
Leiðbeiningar
1
Hitið ofninn í 175°C.
2
Setjið þurrefni saman í skál og hrærið í með sleif.
3
Setjið olíu, mjólk og egg saman í skál og pískið saman. Blandið saman við þurrefnin með sleif.
4
Takið smá af hnetunum og setjið til hliðar. Blandið saman við deigið með sleikju.
5
Smyrjið ílangt bökunarform eða setjið bökunarpappír í það og setjið deigið í. Sáldrið hnetunum yfir.
6
Bakið í ca. 50 mín.
Uppskrift frá Völlu hjá GRGS.is
MatreiðslaBakstur
Hráefni
1/2 bolli Cristallino sykur frá Rapunzel
1/2 bolli Rapadura hrásykur frá Rapunzel
2 bollar Kornax hveiti
2 tsk lyftiduft
2 tsk kanill
2 tsk negull
1 tsk engifer
2 stór egg
1 dl jurtaolía
200ml mjólk
1/2 bolli saxaðar pekanhnetur