fbpx

Nusica smákökur með hvítu súkkulaði

Yndislegar smákökur með Nusica súkkulaðismjöri og hvítu súkkulaði.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 120 smjör við stofuhita
 150gr púðursykur
 100gr sykur
 2 egg
 1 tsk vanilludropar
 200gr Nusica, milk and hazelnut smjör
 300gr hveiti
 1 ½ tsk matarsódi
 3 msk bökunarkakó
 1 tsk salt
 150gr hvítir súkkulaðidropar

Leiðbeiningar

1

Hitið ofninn í 180°C .

2

Þeytið saman smjör og sykur þar til létt og ljóst.

3

Bætið eggjunum við einu í einu, hrærið vel og skafið niður á milli og setjið því næst vanilludropana út í.

4

Setjið helminginn af Nusica súkkulaðismjörinu út í blönduna á þessu stigi og hrærið vel (geymið hinn helminginn).

5

Blandið þurrefnunum saman í skál (hveiti, matarsóda, bökunarkakó og salti) og setjið svo varlega í blönduna og hrærið rólega þar til vel blandað.

6

Hellið um 2/3 af súkkulaðidropunum í hrærivélarskálina og blandið létt (geymið restina til að setja ofan á kökurnar síðar).

7

Setjið restina af Nusica í skálina og blandið saman við með sleif, alls ekki of mikið því það er fallegt að kökurnar fái á sig smá „marmaraútlit“.

8

Takið tæpa matskeið af deigi og rúllið í kúlur og raðið á plötu klædda bökunarpappír og bakið í 11-13 mínútur.

9

Raðið restinni af hvítu súkkulaðidropunum á kökurnar þegar þær eru heitar og nýkomnar úr ofninum, þá bráðna þær og gera kökurnar fallegri.

10

Uppskriftin gefur um 40 stk af smákökum.

Uppskrift frá Berglindi á Gotterí og gersemar.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…