Hér er ein girnileg útfærsla af Mac & Cheese, nema hér erum við að nota Lasagna.
Breyttu fjöldanum og hráefnin reiknast sjálfkrafa um.
Saxið laukinn smátt og steikið stutta stund við meðalhita upp úr olíu, saltið og piprið.
Bætið hakkinu á pönnuna, hækkið hitann og steikið í gegn.
Bætið tómatpaste og pastasósu saman við ásamt vatni, hrærið vel og leyfið aðeins að malla.
Kryddið eftir smekk.
Hitið ofninn í 180°C.
Bræðið smjörið við meðalhita og hrærið hveitið síðan saman við þar til kekkjalaust.
Hellið þá mjólk og rjóma saman við og blandið vel saman, hækkið aðeins hitann.
Rífið allar tegundir af osti og blandið saman við.
Bragðbætið með nautakrafti, salti og pipar.
Hellið makkarónufyllingunni í botninn á eldföstu formi og dreifið næst úr hakkblöndunni.
Stráið rifnum osti yfir allt og setjið í ofninn í 15 mínútur.
Gott er að bera réttinn fram með fersku salati og góðu brauði.
Stofnaðu frían aðgang og haltu utan um uppskriftirnar sem þú hefur prófað og langar að prófa.
Deildu þinni girnilegu útkomu og merktu @gerumdaginngirnilegan á Instagram eða TikTok - við elskum að sjá hvað þið búið til!