Hér eru á ferðinni einfaldar klassískar súkkulaðibitakökur þar sem notað er Marabou Daim bites. Það er best að kæla deigið að lágmarki í 30 min áður en kökurnar eru bakaðar.

Uppskrift
Hráefni
115 g brætt smjör
100 g sykur
165 g púðursykur
1 tsk salt
1 stk egg
2 tsk vanilludropar eða vanillusykur
155 g hveiti
1 tsk lyftiduft
200 g Marabou Daim Bites gróflega saxað
Leiðbeiningar
1
Smjör, sykur og púðursykur hrært saman þar til blandan er orðin létt og góð
2
Salt, egg og vanilludropar út í og blandað vel saman
3
Bætið svo við hveiti og lyftidufti í blönduna og hrærið ekki of lengi
4
Súkkulaði grófsaxað og blandað saman
5
Kælið deigið í c.a 30 min eða lengur
6
Hnoðið í kúlur (stærð fer eftir hversu stórar kökur þið viljið), setjið kökurnar á bökunarpappír og passið að hafa gott bil á mili
7
Bakið við 180°C í c.a 10 min (athugið að ofnar geta verið mismunandi og gott er að fylgjast með kökunum
Hráefni
115 g brætt smjör
100 g sykur
165 g púðursykur
1 tsk salt
1 stk egg
2 tsk vanilludropar eða vanillusykur
155 g hveiti
1 tsk lyftiduft
200 g Marabou Daim Bites gróflega saxað