Bragðmikil grænmetisréttur þar sem Tikka Masala paste-ið tekur tófúið á annað level og Oatly sér um að gera sósuna dásamlega kremaða! Fullkomið jafnvægi milli krydds og mýktar gerir þennan rétt ómótstæðilegan fyrir alla tófúaðdáendur.


Bragðmikil grænmetisréttur þar sem Tikka Masala paste-ið tekur tófúið á annað level og Oatly sér um að gera sósuna dásamlega kremaða! Fullkomið jafnvægi milli krydds og mýktar gerir þennan rétt ómótstæðilegan fyrir alla tófúaðdáendur.
Breyttu fjöldanum og hráefnin reiknast sjálfkrafa um.
Uppskrift eftir Hildi Ómars.







Þetta silkimjúka perurisotto með hvítvíni, gráðosti og ristuðum valhnetum er algjört sælgæti og einstaklega skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnu risotto! Samspil sætu peranna, bragðmikils gráðostsins og ristuðu valhnetanna er alveg dásamlegt.

Þessar krúttlegu halloween tortillur eru tilvaldar í halloween partýið eða sem skemmtilegur kvöldmatur fyrir alla fjölskylduna. Þær eru fylltar með rjómaosti, krydduðum mexíkóskum hrísgrjónum, tómötum og cheddarosti. Bornar fram með fersku guacamole og krydduðum sýrðum rjóma.

Það er fátt betra á köldum dögum en rjúkandi heit frönsk lauksúpa með vel af bráðnum, gylltum osti yfir. Laukurinn er látinn karamelliserast rólega í smjöri þar til hann verður mjúkur, sætur og bragðmikill og er síðan soðinn með hvítvíni, timjani og góðum nautakrafti. Súpunni er svo hellt í eldfastar skálar, ristuðu baguette-brauði raðað yfir og toppað með vel af osti áður en allt fer inn í ofn.

Creamy linsu Tikka Masala… ég elska ekki að enskusletta en stundum eru ensku orðin bara aðeins meira lýsandi. “Rjómakennt” er sennilega rétta orðið en einhvern vegin finnst mér það ekki alltaf passa fyrir rétt úr jurtaríkinu ef það meikar sens… Nóg um það! Hér er á ferðinni bragðmikill og fljótlegur Tikkamasala pottréttur með linsum sem maður græjar í einum potti og getur stjórnað áferðinni alveg eins og maður vill. Maukað, hálfmaukað eða ekki maukað? Frábær með hrísgrjónum sem einföld hversdags máltíð með lítilli fyrirhöfn.

Shakshouka er fullkominn réttur til að deila og á sér margar útfærslur víðs vegar um Miðjarðarhaf, Mið-Austurlönd og Norður-Afríku. Hér setjum við okkar svip á þennan einfalda „allt í einum potti“ rétt með Filippo Berio sólþurrkuðu tómata-pestói. Orðið shakshouka þýðir „blanda“ á arabísku og vísar til dásamlegrar samsetningar af eggjum, tómötum, grænmeti, ólífuolíu og kryddi. Rétturinn er opinn túlkun – og við bætum að sjálfsögðu ítölsku ívafi við okkar útgáfu.

Ilmandi og bragðmikið grænmetisréttur þar sem þykkar sneiðar af blómkáli eru penslaðar með hunangi og velt upp úr hlýjum kryddum að nepölskum sið. Hunangið karamelliserast fallega í ofninum og dregur fram náttúrulega sætu blómkálsins, á meðan kryddin gefa réttinum dýpt og léttan hita. Fullkomið sem aðalréttur með jógúrtsósu og ferskum kryddjurtum – eða sem spennandi meðlæti.