Klassískt og einfalt spaghetti með kjötbollum. Pastasósurnar frá Filippo Berio eru frábærar til í að grípa í á annasömum dögum.
Breyttu fjöldanum og hráefnin reiknast sjálfkrafa um.
Setjið hakk, lauk, piparost, hvítlauk, egg, ritzkex, kraft og krydd í hrærivéla skálina og hnoðið með K-inu (eða í höndunum)
Mótið litlar bollur (um 1 msk) og steikið upp úr ólífuolíu þar til allar hliðar brúnast.
Hellið þá pastasósunni og rjómanum yfir og leyfið að malla á meðan þið sjóðið spaghetti.
Njótið með parmesanosti.
Corona bjór.
Berglind Hreiðars
Stofnaðu frían aðgang og haltu utan um uppskriftirnar sem þú hefur prófað og langar að prófa.
Deildu þinni girnilegu útkomu og merktu @gerumdaginngirnilegan á Instagram eða TikTok - við elskum að sjá hvað þið búið til!