Sous vide ribeye steikur með heimalagaðri bearnaise sósu
Hvað er betra en steik með bearnaise? Hér er klassík sem allir elska.
⏱ 200 mín👨🍳 Erfitt👥 2 manns
Hráefni
600 g Ribeye steikur (250-300 g á mann)
3 stilkar Rósmarín ferskt
4 ½ stilkar Timian ferskt
3 rif Hvítlaukur
250 g Ósaltað smjör
4 stk Eggjarauður
3 tsk Oscar Nautakraftur
1 msk saxað ferskt eða 2 tsk þurrkað Estragon/Tarragon
1 msk söxuð fersk Steinselja
Ferskt salat og bakaðar kartöflur sem meðlæti
Leiðbeiningar
Stillið sous vide tækið á 55 °C fyrir medium rare eldun. Kryddið steikurnar rausnarlega með salti. Setjið kjötið í poka sem hægt er að lofttæma ásamt rósmarín, timian og hvítlauk. Lofttæmið pokann vel og setjið í vatnsbað í 3 klst.
Bræðið smjör við vægan hita. Hitið smjörið þar til rétt naumlega er hægt að setja fingurinn ofan í smjörið vegna hita. Passið að smjörið sjóði ekki. Takið smjörið af hitanum og geymið á meðan eggjarauður eru hrærðar.
Hrærið eggjarauður og bernaise essence í hrærivél í nokkrar mín þar til blandan er orðin ljós og létt. Bætið þá 2 tsk af nautakrafti út í og hrærið áfram.
Aukið hraðann á vélinni og hellið smjörinu í mjög rólegri bunu saman við eggjarauðurnar þar til allt hefur samlagast. Varist að hella of hratt eða of miklu í einu því þá getur sósan skilið sig og eggjarauðurnar hlaupið við of mikinn og skyndilegan hita. Bætið estragon og steinselju út í og látið vélina ganga í um 30 sek. Smakkið til með salti og meiri krafti ef þarf.
Færið sósuna í lítinn pott eða skál og hyljið með loki þar til maturinn er borinn fram, en sósuna má ekki hita aftur upp
Takið pokann með kjötinu úr vatnsbaðinu, fjarlægið kjötið úr pokanum og þerrið það vel á öllum hliðum.
Hitið pönnu við mjög háan hita og kveikið á viftunni við eldavélina. Þegar pannan er orðin sjóðheit, bætið þá 1 msk olíu og smjörklípu út á pönnuna. Setjið kjötið á pönnuna og brúnið í um 30 sek á öllum hliðum eða þar til kjötið er fallega brúnað. Leyfið kjötinu að hvíla í 5 mín áður en það er skorið og borið fram.
Berið fram með bökuðum kartöflum og fersku salati
Sous vide ribeye steikur með heimalagaðri bearnaise sósu
Hvað er betra en steik með bearnaise? Hér er klassík sem allir elska.