Fallegur og bragðgóður sælkeraplatti með rjómaosti, pestó, fíkjum og parmaskinku.


Breyttu fjöldanum og hráefnin reiknast sjálfkrafa um.
Uppskrift frá Gotterí







Eitthvað einfalt og dúndurgott fyrir komandi jólaboð og veislur!

Þetta silkimjúka perurisotto með hvítvíni, gráðosti og ristuðum valhnetum er algjört sælgæti og einstaklega skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnu risotto! Samspil sætu peranna, bragðmikils gráðostsins og ristuðu valhnetanna er alveg dásamlegt.

Þessi dásamlega góði rjómaostabakki er algjör veislumatur og fullkominn til að bera fram þegar von er á góðum gestum! Philadelphia rjómaosturinn er þeyttur með sýrðum rjóma þar til hann verður einstaklega léttur, mjúkur og silkimjúkur. Ofan á kemur svo stökksteikt beikon, ristaðar pekanhnetum og heitt hunang með örlitlum chili sem gefur dásamlegt jafnvægi á milli sætu, seltu og örlítils hita.

Þessi rjómaostabakki með fíkjusultu og pistasíuhnetum er einstaklega einfaldur en alveg ótrúlega góður. Mjúki Philadelphia rjómaosturinn passar fullkomlega með sætri fíkjusultunni og stökkar pistasíuhneturnar setja punktinn yfir i-ið. Þetta er einn af þessum réttum sem tekur örfáar mínútur að útbúa en lítur einstaklega vel út á veisluborðinu. Berið fram með stökkum Tuc kexi og njótið.

Ferskt og gott hvort sem þú berð þetta fram sem meðlæti eða eitt og sér.

Bakaðir ostar eru eitt það allra besta! Hér kemur ein ný hugmynd fyrir ykkur sem mun sannarlega ekki valda vonbrigðum! Fljótlegt og ó svo gott!