Bakaðir ostar eru eitt það allra besta! Hér kemur ein ný hugmynd fyrir ykkur sem mun sannarlega ekki valda vonbrigðum! Fljótlegt og ó svo gott!
Breyttu fjöldanum og hráefnin reiknast sjálfkrafa um.
Hitið ofninn í 200°C.
Skerið brie ostinn í teninga og raðið í eldfast mót.
Rífið hráskinkuna niður og stingið á milli ostabitanna.
Dreifið hunangi, pekanhnetum og timiani yfir og bakið í 10 mínútur.
Skerið á meðan baguette brauðið í sneiðar, penslið smá ólífuolíu yfir sneiðarnar og stráðið ögn af salti yfir. Bakið með ostinum síðustu 3 mínúturnar.
Njótið með kældu Willm hvítvíni!
Stofnaðu frían aðgang og haltu utan um uppskriftirnar sem þú hefur prófað og langar að prófa.
Deildu þinni girnilegu útkomu og merktu @gerumdaginngirnilegan á Instagram eða TikTok - við elskum að sjá hvað þið búið til!