Rauðvínssósa sem er fullkomin með hátíðarmatnum.

Breyttu fjöldanum og hráefnin reiknast sjálfkrafa um.







Eitthvað einfalt og dúndurgott fyrir komandi jólaboð og veislur!

Ég vil meina að mamma geri besta hummus veraldar og auðvitað er hann alltaf bestur þegar mamma mælir ekkert og fer eftir tilfinningu. Ég gerði heiðarlega tilraun til að gera mjúkan hummus eins og hennar. Á internetinu eru miljón tips og trix hvernig þú getur gert hummusinn sem mýkstan og það er allt frá því að taka hýðið af baununum yfir í að setja klaka útí hummusinn. Góðu fréttirnar eru þær að aðferðirnar eru margar og ég mun ekki leggja það á ykkur að afhýða hverja einustu baun.

Hér kemur fullkomin ídýfa undir spænskum áhrifum sem hentar vel sem forréttur eða hluti af osta- eða veisluborði.

Ferskt og gott hvort sem þú berð þetta fram sem meðlæti eða eitt og sér.

Þetta er klassískur matur sem er tilvalinn á sunnudagskvöldi. Uppskrift sem ég hef margoft gert og klikkar aldrei. Safaríkur heill kjúklingur hægeldaður með lauk, gulrótum, sítrónum og hvítlauk. Síðan verður soðið í botninum að silkimjúkri rjómasósu sem er einn besti parturinn. Fullkomið með ofnbökuðum kartöflum, fersku salati og köldu hvítvíni.

Það er fátt sem toppar heimagert guacamole þegar það er gert úr góðum og vel þroskuðum avókadóum 😍🥑 Þetta guacamole er ferskt, kremkennt og fullt af bragði. Avókadóin fá að njóta sín með hvítlauk, rauðlauk, jalapenó, fersku kóríanderi og lime sem gefur þessari klassísku mexíkósku ídýfu fullkomið jafnvægi milli ferskleika, hita og sýru ✨ Leyndarmálið á bak við virkilega gott guacamole er að nota góð avókadó sem eru akkúrat rétt þroskuð. Avókadóin frá Náttúru eru akkúrat þannig. Ég hef bara ekki lennt í því að fá illa þroskað avokadó frá þeim, og þá er nú mikið sagt. Þú finnur þau t.d. í Bónus. Mér finnst líka mikilvægt að mauka það með gaffli frekar en að nota blandara svo það haldi þessari klassísku, grófu áferð sem gerir guacamole svo gott. Þetta er uppskrift sem passar með nánast öllu, tortilla flögum, taco, burrito, grillmat eða sem hluti af veisluborði. Svo er það líka svo gott að maður endar oft með að borða það beint úr skálinni með skeið. Svona einföld uppskrift sem sýnir að þegar hráefnin eru góð þarf ekki mikið meira til. ✨