Ofnbakaður hakkréttur með kartöflum og mozzarella osti

Erum við ekki alltaf að leita að einhverjum nýjum uppskriftum með innihalda hakk? Eitthvað svona til að hafa í miðri viku. Þessi réttur er bæði ódýr og einfaldur og allir í fjölskyldunni elska hann.

blank
Magn1 skammturRating0.0

Uppskrift

Hráefni

 4-5 bökunarkartöflur eða samsvarandi magn af venjulegum gullauga
 1 stór laukur
 5-6 gulrætur
 6 sneiðar beikon
 5-600g nautahakk, má líka vera blanda af naut og lambi
 1 msk nautakraftur frá Oscar
 1 tsk þurrkuð steinselja
 1 tsk timian
 1 tsk hvítlauksduft
 salt og pipar eftir smekk
 1 msk maizena í smá vatn eða sósujafnari
 3-4 dl vatn
 1 dl rjómi frá Örnu
 1/2 poki hreinn mozzarella frá Örnu
 1/2 poki mozzarella með pipar frá Örnu

Leiðbeiningar

1

Afhýðið kartöflur og skerið í sneiðar. Sjóðið í söltuðu vatni í 10 mín.

2

Setjið lauk, gulrætur og beikon í matvinnsluvél og vinnið frekar smátt. Einnig hægt að saxa þetta. Setjið 1 msk olíu á pönnu og steikið þar til laukurinn er glær og grænmetið aðeins byrjað að brúnast.

3

Takið laukblönduna af pönnunni og setjið hakkið út á og brúnið. Setjið krydd og laukblöndu saman við og steikið áfram í smástund.

4

Setjið kjötkraft yfir og vatn og sjóðið í nokkrar mín. Smakkið til, gæti þurft meira salt og pipar? Setjið sósujafnara eða maizena yfir og hrærið vel í. Setjið rjómann saman við.

5

Sigtið kartöflurnar og setjið í eldfast mót. Saltið og piprið aðeins yfir. Setjið þar næst hakkið yfir kartöflurnar og toppið með mozzarella ostinum.

6

Bakið við undir og yfirhita í 20 mín.

7

Berið fram með salati og snittubrauði.


Uppskrift frá GRGS.
MatreiðslaTegundInniheldur
SharePostSave

Hráefni

 4-5 bökunarkartöflur eða samsvarandi magn af venjulegum gullauga
 1 stór laukur
 5-6 gulrætur
 6 sneiðar beikon
 5-600g nautahakk, má líka vera blanda af naut og lambi
 1 msk nautakraftur frá Oscar
 1 tsk þurrkuð steinselja
 1 tsk timian
 1 tsk hvítlauksduft
 salt og pipar eftir smekk
 1 msk maizena í smá vatn eða sósujafnari
 3-4 dl vatn
 1 dl rjómi frá Örnu
 1/2 poki hreinn mozzarella frá Örnu
 1/2 poki mozzarella með pipar frá Örnu
Ofnbakaður hakkréttur með kartöflum og mozzarella osti

Aðrar spennandi uppskriftir

blank
MYNDBAND
BBQ kjötbollurHér erum við með ljúffengar kjötbollur sem er tilvalið að bjóða upp á í veislum eða sem kvöldmat með t.d…