Ilmandi karrý lambapottréttur.
Uppskrift
Hráefni
Leiðbeiningar
Olía og smjör hituð og laukurinn steiktur þar til hann verður mjúkur. Þá er lambagúllasi bætt út í pottinn og steikt þar til kjötið hefur náð góðum lit.
Því næst er karrí-maukinu bætt út í og steikt með kjötinu í 1-2 mínútur. Gott er að smakka sig áfram með maukið því það getur verið missterkt eftir framleiðendum.
Þá er tómötum og kjúklingakrafti bætt út í, kryddað við þörfum, allt látið ná suðu og látið malla undir loki í um það bil 20 mínútur, hrært í pottinum öðru hvoru.
Þá er sætum kartöflum og blómkáli bætt út í og látið malla í um það bil 15 mínútur til viðbótar eða þar til sætu kartöflurnar og blómkálið er soðið í gegn.
Ferskt kóríander dreift yfir eða borið fram með réttinum ásamt hrísgrjónum, sýrðum rjóma eða grískri jógúrt og naan brauði.