Þessar vefjur eru alveg æðislega góðar! Þær henta fullkomlega sem hádegismatur, sem nesti eða léttur kvöldmatur.

Uppskrift
Hráefni
Mission vefjur með grillrönd
Heinz majónes
Heinz milt gult sinnep
Beikon (má sleppa)
Kalkúna álegg
Ostur
Sveppir
1 hvítlauksgeiri
Filippo Berio ólífu olía
Ferkst salat
Gúrka
Tómatur
Leiðbeiningar
1
Steikið beikonið eða bakið í ofni þar til það er tilbúið.
2
Skerið sveppina og steikið upp úr olíu þar til þeir eru nánast tilbúnir. Rífið hvítlaukinn niður og bætið á pönnuna, steikið í 1-2 mín og takið svo af pönnunni.
3
Setjið kalkúna áleggið á pönnuna og bætið ost sneiðum á áleggið, hitið þar til osturinn er bráðnaður.
4
Smyrjið veglegu magni af majónesi á vefjurnar og svolítið af sinnepi. Raðið salatinu fyrst og svo beikoni, kalkúna álegginu og sveppunum á vefjurnar. Skerið gúrkuna og tómatana í bita og raðið ofan á, lokið vefjunum og festið saman með tannstöngli eða einhverju álíka.
Uppskrift frá Lindu Ben.
MatreiðslaKjúklingaréttir, Samlokur, SmáréttirTegundAmerískt
Hráefni
Mission vefjur með grillrönd
Heinz majónes
Heinz milt gult sinnep
Beikon (má sleppa)
Kalkúna álegg
Ostur
Sveppir
1 hvítlauksgeiri
Filippo Berio ólífu olía
Ferkst salat
Gúrka
Tómatur