Ég hef alla tíð haft mikið dálæti af Crépes fylltum með hrísgrjónum og öðru góðgæti. Man eftir mér á Kökuhúsinu í Borgarkringlunni í gamla daga að gæða mér á þessu... Best þykir mér að hafa hvítlaukssósu en sinnepssósan þykir einnig góð.
👨🍳 Miðlungs👥 4 manns
Hráefni
Crépes pönnukökur uppskrift
140 g hveiti
475 ml mjólk
3 egg
2 msk sykur
40 g smjör (brætt)
½ tsk salt
Fylling og samsetning
4 pokar Tilda Boil in bag hrísgrjón (1 kassi)
15 skinkusneiðar
15 ostsneiðar
Iceberg
Blaðlaukur
Paprika
Hvítlauks- eða sinnepssósa
1 msk hvítlauksduft
1 msk paprikuduft
1 msk karrý
1 tsk salt
Leiðbeiningar
Crépes pönnukökur uppskrift
Sigtið hveitið og blandið um helmingnum af mjólkinni saman við það í hrærivélarskálinni.
Setjið þá egg, sykur, bráðið smjör og salt saman við og blandið vel, skafið niður á milli og losið frá köntunum í skálinni.
Hellið að lokum restinni af mjólkinni saman við en varist að gera deigið of þunnt, prófið frekar að baka eina pönnuköku og þynna með mjólk ef of þykkt.
Þegar þið snúið kökunni við er gott að hafa skinku + ostsneið tilbúna til að leggja ofan á og leyfa skinkunni að hitna og ostinum að bráðna áður en þið takið af pönnunni.
Fyllið síðan með grjónum, grænmeti og sósu.
Fylling og samsetning
Hitið vatn að suðu í stórum potti og bætið kryddunum saman við.
Setjið hrísgrjónapokana út í kryddað vatnið, lokið pottinum og sjóðið í 12 mínútur, takið þá vatnið frá og setjið grjónin í skál.
Skerið niður allt grænmeti og fyllið pönnukökuna með grjónum, grænmeti og sósu.
Crépes með hrísgrjónafyllingu
Ég hef alla tíð haft mikið dálæti af Crépes fylltum með hrísgrjónum og öðru góðgæti. Man eftir mér á Kökuhúsinu í Borgarkringlunni í gamla daga að gæða mér á þessu... Best þykir mér að hafa hvítlaukssósu en sinnepssósan þykir einnig góð.