Kjúklingur með chilí eplum og púrrulauk í hvítvínsrjómasósu
Kjúklingur með chilí, eplum og púrrulauk í hvítvínsrjómasósu.
⏱ 65 mín👨🍳 Miðlungs👥 6 manns
Hráefni
1 ¼ kg kjúklingalæri, frá Rose Poultry
1 púrrulaukur, skorinn í þunnar sneiðar
3 hvítlauksrif, söxuð
1 dl hvítvín
2 dl kjúklingasoð, frá Oscar (fæst í fernum)
4 msk rjómi
hveiti
timían
Eplachutney
4 epli, afhýdd og skorin í bita
1 tsk þurrkar chilíflögur
5 msk vatn
2 msk sykur
Leiðbeiningar
Veltið kjúklingalærunum upp úr hveiti og kryddið með salti, pipar og timían.
Setjið olíu á pönnu og brúnið kjúklinginn á báðum hliðum. Setjið í ofnfast mót og látið eplamaukið yfir. Setjið í 210°c heitan ofn.
Hitið olíu á pönnunni og látið púrrulauk og léttsteikið. Bætið hvítlauknum saman við og þá hvítvíninu. Látið það sjóða niður um helming. Hellið þá kjúklingasoðinu saman við og látið sjóða niður.
Hellið soðinu yfir kjúklinginn og þá rjóma. Eldið áfram í 30-40 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður i gegn.
Eplachutney
Setjið allt saman i pott og látið malla við vægan hita i um 10 mínútur eða þar til eplin eru orðin lin.
Kjúklingur með chilí eplum og púrrulauk í hvítvínsrjómasósu
Kjúklingur með chilí, eplum og púrrulauk í hvítvínsrjómasósu.