Fersk mynta og límóna fá jólalegan blæ með mandarínu, krydduðu rommi og Cointreau. Appelsínið gefur létta kolsýru og appelsínubörkur setur punktinn yfir i-ið.


Breyttu fjöldanum og hráefnin reiknast sjálfkrafa um.
Uppskrift úr Gestgjafanum (7. tbl 2026) - Myndir: Sunna Gautadóttir.







Kirsuber, piparminta og límóna mætast í þessum jólalega sour-kokteil. Mjúk froðan og röndóttur jólastafur á glasbrúninni gera hann sérlega hátíðlegan.

Kröftugt espressó og kaffilíkjör mæta krydduðu piparkökubragði í þessari hátíðarútgáfu af espresso martini. Þétt kaffifroðan gerir hann að sérlega girnilegum kokteil eftir jólamatinn.

Í þessari jólalegu útgáfu af gimlet mætir kunnuglegt bragð af malti og appelsíni íslensku gini og Cointreau. Stökkt laufabrauð á glasbrúninni setur íslenskan svip á kokteilinn.

Lakkrísgin, vanilluvermouth og rúbínportvín gefa þessum kokteil bragð sem minnir á jólakonfekt. Berið hann fram í jólamál með muldum ís og skreytið með uppáhalds jólanamminu ykkar.

Dásamlegur klessupiparköku Martini sem er eins og jólin í glasi! Silkimjúkur og rjómakenndur kokteill með ljúffengu piparkökubragði, mildri vanillu og alvöru klessupiparköku sem er hrist saman við drykkinn.

Ef jólasveinninn ætti sinn opinbera kokteil, þá væri það þessi. Heitt súkkulaði með Koskenkorva Minttu og sykurpúðum.