Gnocchi bolognese er réttur þar sem bollur af kartöflu-gnocchi eru sameinaðar klassískri bolognese-sósu úr nautahakki, tómötum og kryddum og borið fram sem heitur aðalréttur.
⏱ 70 mín👨🍳 Miðlungs👥 4 manns
Hráefni
500 g Blandað hakk
5 sneiðar Beikon
500 g De Cecco Gnocchi
80 g Gulrót
60 g Laukur
70 g Sellerí
2 rif Hvítlaukur
2 msk Tómatpúrra
60 ml Hvítvín
½ msk Oscar Kjötkraftur
½ msk Oscar Kjúklingakraftur
400 g Niðursoðnir tómatar
50 g Parmesanostur frá Parmareggio
80 g Filippo Berio Roasted pepper pesto
½ dl Rjómi
8 g Steinselja fersk
8 g Basilíka fersk
Leiðbeiningar
Skerið beikon í bita og steikið á pönnu þar til það er fulleldað. Takið til hliðar.
Skerið gulrætur, sellerí og lauk í litla bita. Steikið gulrætur, sellerí og lauk með smá salti þar til grænmetið er farið að mýkjast. Pressið hvítlauk út á pönnnuna og steikið þar til hvítlaukurinn byrjar að ilma.
Bætið kjötinu út á pönnuna og steikið þar til það er fulleldað. Bragðbætið með kjöt og kjúklingakrafti.
Bætið tómatpúrru út á pönnuna og steikið í stutta stund. Bætið hvítvíni út á pönuna og látið sjóða niður í stutta stund.
Bætið niðursoðnum tómötum, beikoni og pestó út á pönnuna og blandið vel saman. Rífið helminginn af parmesanostinum saman við og látið malla rólega undir loki í 15 mín.
Takið lokið af pönnunni og látið kjötsósuna sjóða niður í 15 mín. Bætið svo út í og látið malla rólega á meðan gnocchi er soðið
Setjið vatn í pott ásamt ríflegu magni af vatni og náið upp suðu. Bætið gnocchi út í pottinn og sjóðið í um 2 mín. Þegar gnocchi bitarnir rísa upp á yfirborðið og fljóta þar eru þeir tilbúnir.
Bætið gnocchi út í kjötsósuna og blandið vel saman. Saxið steinselju og basilíku og blandið saman við réttinn. Smakkið til með salti og pipar og rífið parmesan yfir.
Berið fram með góðu brauði.
Gnocchi bolognese með beikoni og parmesanosti
Gnocchi bolognese er réttur þar sem bollur af kartöflu-gnocchi eru sameinaðar klassískri bolognese-sósu úr nautahakki, tómötum og kryddum og borið fram sem heitur aðalréttur.