Chorizo pizza með ólífum, klettasalati og parmesan
Chorizo-pizza með ólífum, klettasalati og parmesan er pizza með chorizo, ólífum og rifnum parmesanosti, toppuð með fersku klettasalati eftir bakstur.
⏱ 25 mín👨🍳 Auðvelt👥 2 manns
Hráefni
400 g Pizzadeig
70 g Chorizo
120 ml Pizzasósa frá Hunts
3 g Basilíka fersk
2 rif Hvítlaukur
120 g Mozzarella rifinn
¼ l ítill Rauðlaukur
20 g Klettasalat
10 g Parmesan frá Parmareggio
30 g Grænar ólífur steinlausar
Chiliflögur eftir smekk
Leiðbeiningar
Forhitið ofn í 230°C á pizzastillingu eða með blæstri.
Takið pizzadeigið úr kæli 2 klst fyrir eldun.
Saxið basilíku og pressið 1 hvítlauksrif. Hrærið basilíku og hvítlauk saman við pizzasósuna. Pressið 1 hvítlauksrif saman við 40 ml af góðri ólífuolíu.
Setjið bökunarplötu inn í ofn svo hún hitni vel á meðan unnið er í botninum. Ef pizzasteinn er til á heimilinu er kjörið að nota hann í stað bökunarplötunnar. Hafið bökunarpappír kláran til að vinna deigið á.
Skerið chorizo í bita, skerið rauðlauk eftir smekk í strimla og sneiðið ólífur.
Setjið hveiti á hendurnar og borðið og notið hendurnar til þess að fletja botninn út í um 15″ hring. Best er að vinna út frá miðju deigsins í átt að kantinum og reyna að hlífa um 2 cm af kantinum við sem mestu hnjaski. Þannig er gasinu í deiginu ýtt út í kantinn sem verður til þess að hann lyftist betur.
Dreifið pizzasósu yfir botninn. Dreifið mozzarellaosti yfir pizzuna. Raðið chorizo, rauðlauk og ólífum á pizzuna. Rífið svolítinn parmesan ost yfir og stráið chiliflögum eftir smekk yfir.
Takið heita ofnplötuna úr ofninum (farið varlega) og dragið pizzzuna á ofnpappír á heita plötuna. Bakið í neðstu grind í ofni í 12-15 mín eða þar til pizzan er orðin fallega gyllt og ljúffeng.
Toppið pizzuna með klettasalati og hvítlauksolíu eftir smekk. Rífið parmesan ost yfir og berið fram.
Chorizo pizza með ólífum, klettasalati og parmesan
Chorizo-pizza með ólífum, klettasalati og parmesan er pizza með chorizo, ólífum og rifnum parmesanosti, toppuð með fersku klettasalati eftir bakstur.