Brauðtertur eru klassík sem alltaf slá í gegn. Þessi er einföld en guðdómlega ljúffeng, eggjasalat með beikoni og smjörsteikt brauðtertubrauð.

Uppskrift
Hráefni
Leiðbeiningar
Hitið ofninn í 220°C.
Eldið beikonið í ofni þar til það er stökkt, þurrkið á pappír og saxið smátt niður, geymið um 3 sneiðar til að skreyta með. Útbúið salatið á meðan.
Saxið rauðlaukinn smátt og blandið eggjum og beikoni saman við saxaðan laukinn.
Hrærið næst majónesinu saman við og smakkið til með Aromat kryddi.
Skerið skorpuna af brauðtertusneiðunum og setjið á ofnplötu með bökunarpappír.
Penslið með bræddu smjöri á báðum hliðum og setjið í 220°C heitan ofninn í um 4 mínútur á hvorri hlið, kælið áður en þið setjið saman.
Skiptið salatinu í 4 hluta og staflið upp brauðtertubrauðsneiðum með salati á milli og skreytið (sjá að neðan).
Hægt er að leika sér með hráefnin í skreytingingunum
Gott að hafa sítrónusneiðarnar þunnt skornar