fbpx

Æðislegt rjómaspagettí með spínati, sveppum og Pancetta löðrandi í osti

Þessi spagettí réttur er afar einfaldur sem tekur stuttan tíma að gera en samt svo góður.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 3 msk ólífuolía
 150 gr kastaníusveppir
 2 hvítlauksrif
 1 tsk fínt borðsalt
 pipar
 250 gr pancetta eða beikon
 1 pakki De Cecco spaghetti
Rjóma/ostasósa
 1/2 líter rjómi
 300 ml eða 3 dl nýmjólk
 45 gr hveiti
 200 gr pecorino ostur
 450 gr rifinn mozzarella
 200 gr spínat
 Hnefi af ferskri basiliku
 1/2 dl Philadelphia rjómaostur með hvítlauk

Leiðbeiningar

1

Byrjið á að setja vatn í pott og salta mjög vel nánast eins og sjóvatn, látið suðuna koma upp og setjið spagettíið út í og sjóðið í 10-11 mín

2

Á meðan skerið þá sveppina í 4 parta og steikjið upp úr 3 msk ólífuolíu á pönnu, saltið með 1 tsk fínu borðsalti og piprið

3

Þegar sveppirnir eru steiktir og allur safinn gufaður upp af þeim bætið þá pancetta við út á pönnuna og steikið saman

4

Þegar það er til merjið þá 2 hvítlauksrifin yfir og hrærið vel saman við lægsta hita

5

Dreifið næst hveitinu yfir allt á pönnuni og hrærið vel og leyfið því að hitna saman eins og í eina mínútu til að losna við allt hveitibragð

6

Hækkið nú hitann upp í miðlungshita og hellið rjómanum út á og hrærið vel saman þar til er orðið kekkjalaust og þykkt

7

Bætið þá mjólk og philadelphia ostinum saman við og látið bráðna vel saman og þykkna, sjóðið þar til er orðið kekkjalaust og silkimjúkt

8

Næst er svo að bæta rifnum pecerino osti út í ásamt mozzarella ostinum. Leyfið ostinum alveg að bráðna í sósunni en fyrst er hann mjög teygjanlegur og gerir tauma í sósuna

9

Hrærið í sósunni þar til osturinn er hættur að teygjast og sósan orðin silkimjúk eða kannski eins og 5-10 mín max

10

Bætið þá spínatinu smátt og smátt út á ásamt basilikinu og hrærið vel saman þar til spínatið er orðið mjúkt en það tekur enga stund, smakkið til og saltið og piprið ef ykkur finnst vanta salt

11

Sigtið svo spagettíið en alls ekki skola það heldur setjið það beint út á sósuna og hrærið saman

12

Berið fram með hvítlauksbrauði og góður fersku salati sem dæmi

Uppskrift frá Maríu á paz.is

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir