Creamy Lemon Tagliatelle með heilgrilluðum kjúklingi
Silkimjúkt lemon tagliatelle með parmesan, Philadelphia og hvítlauk borið fram með safaríkum heilgrilluðum kjúkling.
⏱ 90 mín👨🍳 Miðlungs👥 5 manns
Hráefni
Kjúklingur
1 heill kjúklingur
2 msk ólífuolía
Salt og svartur pipar
1 haus ferskur hvítlaukur
Krydd að eigin vali
Pasta
500 g De Cecco Tagliatelle
200 g Philadelphia Original
1 ¾ dl rifinn parmesan
3 ½ hvítlauksrif
Börkur af 1 sítrónu
Safi úr 1 sítrónu
Chiliflögur eftir smekk
2 ½ dl pastavatn
Kjúklingasoð úr eldfastamótinu
Svartur pipar
Fersk basilika
Leiðbeiningar
Byrjið á að hita ofninn í 180°C.
Leggið kjúklinginn í eldfast mót og smyrjið hann með olíu. Kryddið vel með salti og pipar ásamt kryddi að eigin vali. Setjið ferskan hvítlauk inn í kjúklinginn og eldið í um 1 klukkustund og 15 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn og húðin orðin gyllt og stökk.
Á meðan kjúklingurinn eldast er sósan undirbúin. Hrærið saman í skál Philadelphia, parmesan, sítrónuberki, sítrónusafa, chiliflögum og svörtum pipar.
Sjóðið tagliatelle samkvæmt leiðbeiningum á pakka í vel söltuðu vatni og ólífuolíu. Geymið 2-3 dl af pastavatninu áður en vatninu er hellt af.
Bræðið smjör á pönnu og steikið hvítlauk við vægan hita þar til hann verður mjúkur og ilmandi. Hellið þá smá af kjúklingasoðinu úr eldfasta mótinu út á pönnuna ásamt 1 dl af pastavatni.
Setjið Philadelphia blönduna út á pönnuna og hrærið þar til sósan verður silkimjúk. Bætið meira pastavatni við ef þarf.
Setjið tagliatelle í stóra skál og hellið sósunni yfir. Veltið pastanu vel upp úr sósunni þar til allt verður vel hjúpað og silkimjúkt.
Berið fram með sneiðum af heilgrilluðum kjúkling, extra parmesan, ferskri basiliku og smá sítrónuberki yfir.
Creamy Lemon Tagliatelle með heilgrilluðum kjúklingi
Silkimjúkt lemon tagliatelle með parmesan, Philadelphia og hvítlauk borið fram með safaríkum heilgrilluðum kjúkling.