Hér sannast að einfalt er svo langbest – njótið vel!

Uppskrift
Hráefni
Kjúklingur
4 kjúklingabringur, skornar í strimla t.d. frá Rose Poultry
1 dl hveiti, sett á disk
1-2 laukar, skornir í teninga
1 paprika, skorin í teninga
200 g kasjúhnetur
3 vorlaukar, skornir gróflega
1 rautt chilí, skorið í sneiðar
Sósa
2 dl ostrusósa, t.d. Oyster sauce frá Blue dragon
2 dl soyasósa, t.d. Dark soy sauce frá Blue dragon
2 dl tómatsósa
1 dl hrásykur
2 hvítlauksrif, söxuð
Leiðbeiningar
1
Blandið öllum hráefnum fyrir sósuna saman og smakkið til.
2
Veltið kjúklingabitum upp úr hveiti.
3
Setjið olíu á pönnu og hitið vel. Steikið kjúklingabitana þar til þeir eru gylltir að lit.
4
Bætið lauk, papriku, hnetum, chilí og vorlauk saman við og steikið.
5
Bætið sósunni út á pönnuna (magn að eigin smekk) og blandið vel saman. Athugið að magnið er frekar mikið svo ekki víst að þið notið alla sósuna – en mér þykir voða gott að hafa mikið af sósu í þessum rétti.
6
Takið fljótlega af hitanum og berið fram með hrísgrjónum.
MatreiðslaKjúklingaréttirTegundTælenskt
Hráefni
Kjúklingur
4 kjúklingabringur, skornar í strimla t.d. frá Rose Poultry
1 dl hveiti, sett á disk
1-2 laukar, skornir í teninga
1 paprika, skorin í teninga
200 g kasjúhnetur
3 vorlaukar, skornir gróflega
1 rautt chilí, skorið í sneiðar
Sósa
2 dl ostrusósa, t.d. Oyster sauce frá Blue dragon
2 dl soyasósa, t.d. Dark soy sauce frá Blue dragon
2 dl tómatsósa
1 dl hrásykur
2 hvítlauksrif, söxuð