Veðrið undanfarna daga hefur sagt að sumarið er á næsta leið! Þá dettur maður í annan gír í eldhúsinu og þessi undursamlega suðræna ávaxta Sangria er fullkomin í næsta sumarpartý!
👨🍳 Miðlungs👥 4 manns
Hráefni
500 ml Muga hvítvín
300 ml appelsínu límonaði
½ appelsína
½ sítróna
1 lime
¼ ananas
½ mangó
8 jarðarber
Mynta
Klakar
Leiðbeiningar
Skerið ávextina niður í litla bita.
Blandið öllu nema klökum og myntu saman í karöflu/könnu.
Fyllið glös með klökum, hellið Sangriu yfir og skreytið með myntu.
Suðræn Sangria
Veðrið undanfarna daga hefur sagt að sumarið er á næsta leið! Þá dettur maður í annan gír í eldhúsinu og þessi undursamlega suðræna ávaxta Sangria er fullkomin í næsta sumarpartý!