Undursamleg litrik grillspjót í hunangs Caj P mareneringu
Uppskrift
Hráefni
Leiðbeiningar
Afþýðið kjúklinginn og skerið niður í hæfilega stóra bita (ég tók hvert læri í 3 hluta).
Setjið bitana í skál með um 8 matskeiðum af grillolíu, veltið þeim upp úr olíunni, plastið og leyfið að marinerast í kæli í að minnsta kosti klukkustund (yfir nótt væri líka í lagi).
Skerið lauk, papriku og ananas í bita og þræðið það ásamt kjúklingabitum upp á grillspjót. Ef þið eruð að nota tréspjót er gott að leggja þau í bleyti í að minnsta kosti klukkustund (eða yfir nótt) áður en þau eru sett á grillið.
Útbúið dressinguna með því að hræra öllu vel saman og kæla fram að notkun.
Gott er síðan að sjóða maísstönglana á meðan spjótin eru grilluð.
Spjótin má grilla á meðalheitu grilli í um 15 mínútur og pensla aðeins aftur yfir kjúklinginn með grillolíunni síðustu mínúturnar.
Dressinguna má síðan nota bæði með spjótunum sjálfum og til þess að smyrja á maísstönglana.