Léttur og fallegur drykkur með mjúku kókos- og hindberjabragði. Mæli með að gera þennan um jólin🎄
👥 1 manns
Hráefni
Fyrir 1 kokteil
6 cl gin
4 cl kókosmjólk
2 cl ferskur sítrónusafi
2 cl sykursíróp
Lítill handfyllir af Driscoll’s hindberjum
1 eggjahvíta
Klakar
Sykursíróp
200 g sykur
200 ml vatn
Skraut á glas
Kókosmjöl
sykursíróp
Leiðbeiningar
Setjið allt í hristara (án klaka) og hristið vel í 10–15 sekúndur til að fá fallega froðu.
Bætið síðan klökum út í og hristið aftur þar til blandan verður vel kæld.
Dreifið kókosmjöli á disk og sykursírópi á annan disk. Dýfið brúninni á fallegu glasi öfugu ofan í sykursírópið. Því næst dýfið glasinu í kókosmjölið og þekjið brúnina.
Sigtið í glasið og skreytið með hindberjum. Njótið vel!
Snowball hindberja gin kokteill
Léttur og fallegur drykkur með mjúku kókos- og hindberjabragði. Mæli með að gera þennan um jólin🎄