Ljómandi góð sjávarréttasúpa.


Ljómandi góð sjávarréttasúpa.
Breyttu fjöldanum og hráefnin reiknast sjálfkrafa um.
Uppskrift frá Ólafi Ágústssyni úr Sælkerafiskur allt árið.







Það er fátt betra á köldum dögum en rjúkandi heit frönsk lauksúpa með vel af bráðnum, gylltum osti yfir. Laukurinn er látinn karamelliserast rólega í smjöri þar til hann verður mjúkur, sætur og bragðmikill og er síðan soðinn með hvítvíni, timjani og góðum nautakrafti. Súpunni er svo hellt í eldfastar skálar, ristuðu baguette-brauði raðað yfir og toppað með vel af osti áður en allt fer inn í ofn.

Hér erum við með uppskrift fyrir stóreldhús. Rjómakennd og létt fiskisúpa með ferskum sítrónukeim og mildum kryddjurtum. Fiskikraftur og hvítvínsþykkni gefa súpunni góða dýpt á meðan sýrður rjómi og smjör gera áferðina silkimjúka og fágaða. Þessi uppskrift er frábær sem glæsilegur forréttur eða léttur aðalréttur. Vörurnar frá OSCAR sem eru notaðar í uppskriftinni fást inn á vefverslun Innnes ehf.

Ég hef lengi ætlað að prófa útfærslu af „Tomato Soup & Grilled Cheese“ eins og Bandamenn myndu kalla þetta. Súpan er stútfull af góðri næringu og þetta ostabrauð er eitthvað annað gott!

Sumarið er á næsta leið og þetta salat er æðislega ferskt og gott! Einnig er góð tilbreyting að grilla fisk, rækjur, humar og annað slíkt í bland við kjötið á næstunni.

Þegar við vorum í skíðaferð í Sölden í febrúar var ansi oft keypt gúllassúpa í hádeginu. Ég hafði aldrei útbúið slíka en sannarlega keypt í skíðaferðum svo mér fannst kominn tími til að prófa þetta. Útkoman var dásamleg og þessi uppskrift verður sannarlega útbúin oftar hér á þessu heimili í framtíðinni!

Þessi útgáfa af klassísku Eggs Benedict fær mildan sætukeim sem mætir silkimjúkri, kryddjurtaríkri hollandaise-sósu. Hunangið frá Rowse hentar einstaklega vel með sjávarréttum – og þegar villtur lax er penslaður með því nýtur hið náttúrulega, fíngerða bragð sín til fulls.