Rósmarín og hvítlauksmarinerað lamb með graskerssalati og sveppasósu
Rósmarín og hvítlauksmarinerat lamb með graskerssalati og sveppasósu er ljúffengt lambakjöt sem marinerast í rósmarín og hvítlauk og er borið fram með haustlegu graskerssalati og ríkulegri sveppasósu.
⏱ 70 mín👨🍳 Miðlungs👥 2 manns
Hráefni
500 g Lambaprime
2 stilkar Rósmarín ferskt
3 rif Hvítlaukur
400 g (eftir að skinnið er fjarlægt) Grasker (Butternut squash)
50 g Grænkál
1 stk Sítróna
30 g Pekanhnetur
15 g Parmesan frá Parmareggio
180 ml Rjómi
75 g Kastaníusveppir
½ stk Sveppakraftur
Leiðbeiningar
Hreinsið rósmarín frá stilknum og saxið smátt. Pressið 2 hvítlauksrif. Setjið lambaprime í skál með rósmarín, pressuðum hvítlauk, svolítilli ólífuolíu og tæpum 2 tsk af flögusalti. Blandið vel saman og nuddið marineringunni vel í kjötið og látið marinerast í amk 2 tíma.
Stillið ofn á 180°C með blæstri
Skerið skinnið frá graskerinu og skerið í munnbitastærðir. Veltið upp úr svolítilli olíu, salti og 1 pressuðu hvítlauksrifi. Dreifið graskerinu yfir ofnplötu með bökunarpappír og bakið í neðstu grind í ofni í 25-30 mín eða þar til graskerið er fallega gyllt og mjúkt í gegn. Hrærið í þegar tíminn er hálfnaður.
Saxið grænkál gróflega ásamt pekanhnetum og setjið í stóra skál. Rífið helminginn af parmesanostinum saman við ásamt svolitlu af sítrónuberki (varist að taka hvíta undirlagið með). Blandið graskerinu saman við þegar það er tilbúið. Smakkið til með sítrónusafa, salti og skvettu af ólífuolíu.
Sneiðið sveppi og saxið skalottlauk smátt.
Brúnið kjötið vel á öllum hliðum í um 5 mín á heitri pönnu. Færið kjötið svo í eldfast mót og bakið í miðjum ofni í 12-15 mín eða þar til kjarnhiti kjötsins hefur náð 65°C. Látið kjötið hvíla í nokkrar mín áður en það er skorið.
Steikið sveppi og skalottlauk á sömu pönnu og kjötið var steikt. Bætið rjóma og sveppakrafti út á pönnuna þegar sveppirnir eru fulleldaðir og laukurinn mjúkur. Látið malla í stutta stund og rífið svo restina af parmesanostinum saman við. Smakkið til með salti ef þarf og bætið við ögn af sósulit ef vill.
Rósmarín og hvítlauksmarinerað lamb með graskerssalati og sveppasósu
Rósmarín og hvítlauksmarinerat lamb með graskerssalati og sveppasósu er ljúffengt lambakjöt sem marinerast í rósmarín og hvítlauk og er borið fram með haustlegu graskerssalati og ríkulegri sveppasósu.