Þessi réttur er himnasending fyrir veisluna því hann er svo einfaldur og ódýr í innkaupum.


Breyttu fjöldanum og hráefnin reiknast sjálfkrafa um.
GRGS uppskrift.







Þetta silkimjúka perurisotto með hvítvíni, gráðosti og ristuðum valhnetum er algjört sælgæti og einstaklega skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnu risotto! Samspil sætu peranna, bragðmikils gráðostsins og ristuðu valhnetanna er alveg dásamlegt.

Þetta ljúffenga eggaldinlasagna er alveg dásamlega gott og fullkominn réttur á köldum haust- og vetrarkvöldum. Hér koma þunnar, mjúkar eggaldinsneiðar í stað hefðbundinna lasagnaplatna og á milli þeirra er bragðmikil nautahakks- og tómatsósa, silkimjúk ostafylling og nóg af bráðnum mozzarella.

Hér kemur helgarútgáfa af lasagna sem bragðast alveg hreint dásamlega! Sá einn af mínum uppáhalds matarbloggurum, John Gregory Smith gerði þetta „Smashed Boozy Lasagne“ og varð ég strax að prófa það!

Ef þið elskið bragðmikil salöt sem bæði metta vel og eru stútfull af fersku bragði, þá verðið þið að prófa þetta BBQ kjúklingasalat! Safaríkur BBQ kjúklingur, ferskt grænmeti, kryddaðar svartar baunir, stökkt nachos og Mexíkó ostur mynda saman fullkomna blöndu. Það sem setur punktinn yfir i-ið er hins vegar silkimjúka kóríanderdressingin sem gefur salatinu ótrúlega ferskt og ljúffengt bragð.

Ceasar salat er eitt af þessum salötum sem maður verður eiginlega aldrei leiður á, sérstaklega þegar það er extra bragðmikið og með fersku sumar twisti. Safaríkar kjúklingalundir, stökkt róman salat, parmesan og crunchy brauðteningar blandast saman við kremkennda heimagerða Ceasar dressingu sem er alveg lykillinn að góðu salati. Og svo bæta fersku jarðaberin við ótrúlega góðri sætu og ferskleika sem passar svo vel með salta parmesaninum og djúpa bragðinu í dressingunni.

Tamari ristuð sólblómafræ eru hluti af minni nostalgíu en mamma vann á tímabili á veitingastaðnum “Á næstu grösum” þar sem alltaf voru tamari ristuð sólblómafræ í boði til að strá yfir matinn. Þetta voru fræin sem hægt var að sækja sér meira af og fræin sem maður fékk sér smá í lófann og beint uppí munn,, æj þið vitið.