Parmesan ýsa uppáhald allra

Fiskur með sérstaklega ljúffengum hjúp úr parmesan smjöri.

blank
Magn1 skammturRating0.0

Uppskrift

Hráefni

 800 g ýsuflök, roðflett
 50 g Parmareggio parmesan ostur, rifinn
 60 g smjör, mjúkt
 3 msk majones
 2 msk safi úr sítrónu
 1 tsk basil, þurrkað
 ½ tsk hvítlauksduft
 svartur pipar

Leiðbeiningar

1

Blandið saman í skál osti, smjöri, majones og sítrónusafa. Kryddið með basil, hvítlauksdufti og svörtum pipar. Blandið vel saman og geymið.

2

Raðið flökunum á olíusmurt ofnfast mót. Saltið og piprið.

3

Grillið í ofni í 2-3 mínútur. Snúið síðan flökunum við og grillið á hinni hliðinni í svipaðan tíma. Takið þau næst úr ofninum og látið parmesanostablönduna yfir þá hlið sem á að snúa upp. Látið aftur inn í ofn í 2-3 mínútur. Varist að ofelda fiskinn.


Uppskrift frá Berglindi á GulurRauðurGrænn&Salt.
SharePostSave

Hráefni

 800 g ýsuflök, roðflett
 50 g Parmareggio parmesan ostur, rifinn
 60 g smjör, mjúkt
 3 msk majones
 2 msk safi úr sítrónu
 1 tsk basil, þurrkað
 ½ tsk hvítlauksduft
 svartur pipar
Parmesan ýsa uppáhald allra

Aðrar spennandi uppskriftir

blank
MYNDBAND
Blinis með reyktum laxiBlinis er fullkominn forréttur eða smáréttur á hlaðborði! Sums staðar er hægt að kaupa tilbúnar kökur en það er ekkert…