fbpx

Ómótstæðilegt Pad thai með risarækjum

Ómótstæðilegt Pad thai með risarækjum. Frábær uppskrift fyrir ykkur sem elskið asíska matargerð.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 300 g Risarækjur
 200 g Hrísgrjónanúðlur
 2 stk Egg
 4 msk Fiskisósa
 3 msk Tamarind pasteFæst í Fiska
 5 msk Púðursykur
 1 msk Hrísgrjónaedik
 1 msk Límónusafi
 1 msk Srirachasósa
 1 msk Paprikuduft
 80 ml Salthnetur
 60 g Baunaspírur
 ½ stk Laukur, lítill
 3 stk Hvítlauksrif
 2 stk Vorlaukur
 8 g Kóríander
 50 g Agúrka
 Límóna

Leiðbeiningar

1

Útbúið hrísgrjónanúðlur samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.

2

Þerrið rækjur og setjið í skál með smá skvettu af olíu og 1 pressuðu hvítlauksrifi. Látið marinerast á meðan unnið er í öðru.

3

Hrærið saman fiskisósu, tamarind paste, púðursykur, hrísgrjónaedik, límónusafa, srirachasósu og paprikuduft.

4

Sneiðið hvíta og ljósgræna partinn af vorlauknum í sneiðar.

5

Sneiðið dekkri græna partinn af vorlauknum í þunnar sneiðar og geymið til hliðar til þess að strá yfir réttinn þegar hann er tilbúinn.

6

Pískið eggin saman í skál. Saxið salthnetur og kóríander og sneiðið lauk í þunna strimla. Skerið gúrkur í sneiðar.

7

Hitið olíu á stórri pönnu við miðlungshita. Bætið lauk og ljósa partinum af vorlauknum út á pönnuna og steikið þar til laukurinn er farinn að mýkjast. Pressið 2 hvítlauksrif út á pönunna og steikið áfram í um 1 mín.

8

Hækkið hitann á pönnunni. Bætið rækjum út á pönnuna og steikið í um 2 mín á hvorri hlið.

9

Færið allt til hliðar á pönnunni og hellið eggjunum á auða part pönnunar. Bíðið í smástund þar til eggin eru farin að þéttast og hrærið þá í þeim til að brjóta þau í sundur og hrærið þeim svo vandlega saman við hin hráefnin á pönnunni.

10

Bætið ¾ af baunaspírunum út á pönnuna ásamt núðlunum og sósunni. Veltið núðlunum upp úr sósunni í stutta stund þar til allt hefur samlagast og núðlurnar eru vel huldar sósu. Hrærið helmingnum af kóríander, vorlauk og salthnetunum saman við og smakkið réttinn til með salti.

11

Toppið réttinn með restinni af salthnetunum, kóríander og vorlauk. Berið fram með límónubátum, gúrkusneiðum og restinni af baunaspírunum til hliðar.

12

Berið fram með góðu rósavíni.

Uppskriftin er eftir Snorra Guðmundsson.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir