Þegar það fer að kólna í veðri finnst mér óskaplega gott að færa mig meira yfir í rétti sem innihalda ofnbakað grænmeti, hvort sem það er meðlæti eða aðalréttur. Þetta kúskús salat getur vel verið hvorttveggja, létt máltíð eða meðlæti með öðrum mat. Það er litríkt og inniheldur nokkur dásamleg ilmandi krydd sem verma kroppinn um leið. Kúskús er svo skemmtilegt hráefni og hægt að leika sér endalaust með það. Svo er þessi réttur líka vegan og hnetulaus. Það væri líka hægt að gera hann glútenlausan með því að nota kínóa auk þess sem það er hægt að nota nokkurn veginn hvaða grænmeti sem er, tilvalinn réttur til að nýta það sem til er


Þegar það fer að kólna í veðri finnst mér óskaplega gott að færa mig meira yfir í rétti sem innihalda ofnbakað grænmeti, hvort sem það er meðlæti eða aðalréttur. Þetta kúskús salat getur vel verið hvorttveggja, létt máltíð eða meðlæti með öðrum mat. Það er litríkt og inniheldur nokkur dásamleg ilmandi krydd sem verma kroppinn um leið. Kúskús er svo skemmtilegt hráefni og hægt að leika sér endalaust með það. Svo er þessi réttur líka vegan og hnetulaus. Það væri líka hægt að gera hann...
Breyttu fjöldanum og hráefnin reiknast sjálfkrafa um.







Ef þið elskið bragðmikil salöt sem bæði metta vel og eru stútfull af fersku bragði, þá verðið þið að prófa þetta BBQ kjúklingasalat! Safaríkur BBQ kjúklingur, ferskt grænmeti, kryddaðar svartar baunir, stökkt nachos og Mexíkó ostur mynda saman fullkomna blöndu. Það sem setur punktinn yfir i-ið er hins vegar silkimjúka kóríanderdressingin sem gefur salatinu ótrúlega ferskt og ljúffengt bragð.

Ceasar salat er eitt af þessum salötum sem maður verður eiginlega aldrei leiður á, sérstaklega þegar það er extra bragðmikið og með fersku sumar twisti. Safaríkar kjúklingalundir, stökkt róman salat, parmesan og crunchy brauðteningar blandast saman við kremkennda heimagerða Ceasar dressingu sem er alveg lykillinn að góðu salati. Og svo bæta fersku jarðaberin við ótrúlega góðri sætu og ferskleika sem passar svo vel með salta parmesaninum og djúpa bragðinu í dressingunni.

Tamari ristuð sólblómafræ eru hluti af minni nostalgíu en mamma vann á tímabili á veitingastaðnum “Á næstu grösum” þar sem alltaf voru tamari ristuð sólblómafræ í boði til að strá yfir matinn. Þetta voru fræin sem hægt var að sækja sér meira af og fræin sem maður fékk sér smá í lófann og beint uppí munn,, æj þið vitið.

Sumarið er á næsta leið og þetta salat er æðislega ferskt og gott! Einnig er góð tilbreyting að grilla fisk, rækjur, humar og annað slíkt í bland við kjötið á næstunni.

Það er alltaf gaman að prófa nýjar ídýfur og ekki skemmir fyrir ef þær eru einfaldar og ljúffengar eins og þessi hér!

Kjúklingasalat með ferskum berjum og burrata osti er ferskt salat með kjúklingi, hindberjum, hráskinku og furuhnetum, toppað með mjúkri burrata ostakúlu — létt og bragðgott sem aðalréttur eða hliðarréttur.