Það er svo ósköp freistandi að sækja tilbúinn mat þegar við erum í tímaþröng eða bara löt. Það er hins vegar afar fljótlegt að græja gómsæta núðlurétti heima og ég fullyrði að þeir séu ekkert síðri en það sem hægt sé að taka með sér heim. Þessi er einn af okkar uppáhalds og það tekur enga stund að útbúa hann. Ég skipti oft út grænmetinu fyrir það sem ég á til í kælinum og það er ekkert heilagt í magni á neinu. Satay sósan er algjört uppáhald á heimilinu og ég á hana yfirleitt alltaf til ásamt núðlum. Restina er hægt að vinna í kringum!


Það er svo ósköp freistandi að sækja tilbúinn mat þegar við erum í tímaþröng eða bara löt. Það er hins vegar afar fljótlegt að græja gómsæta núðlurétti heima og ég fullyrði að þeir séu ekkert síðri en það sem hægt sé að taka með sér heim. Þessi er einn af okkar uppáhalds og það tekur enga stund að útbúa hann. Ég skipti oft út grænmetinu fyrir það sem ég á til í kælinum og það er ekkert heilagt í magni á neinu. Satay sósan er...
Breyttu fjöldanum og hráefnin reiknast sjálfkrafa um.







Hér erum við með einfalda lausn á hollum og góðum kvöldmat. Það getur verið gott að grípa í tilbúnu grjónin frá Tilda þegar það gefst lítill tími fyrir kvöldmat.

Uppskrift sem er fullkomin þegar þið viljið eitthvað einfalt, fljótlegt og bragðgott af grillinu. Ljúffengar kjúklingalundir penslaðar með Heinz Sweet Sticky & Smooth BBQ sósu, kartöflur í álpappír á grillinu og köld sósa sem passar fullkomlega með. Mæli með að bera fram með fersku salati, maískólfum eða öðru góðu grænmeti.

Einfaldur og bragðgóður kjúklingaréttur með sólþurrkuðum tómötum og rjómalagaðri sósu. Fullkominn með pasta, kartöflumús eða hrísgrjónum.

Silkimjúkur Philadelphia rjómaostur bráðnar ofan í heitu kartöflurnar og með stökkum pistasíuhnetum, ferskum kryddjurtum og örlitlu heitu hunangi verður til ótrúlega bragðgóð blanda af ekki bara sætu, saltu og fersku en einnig mjúku og krönsí. Sem sagt alveg ómótstæðileg blanda.

Salat vefjur hafa verið ansi vinsælar undanfarið og ég varð auðvitað að hoppa á vagninn og prófa útfærslu af slíkum! Útkoman var stórgóð og allir á heimilinu ansi sáttir með þetta uppskrift svo hér kemur hún fyrir ykkur að njóta.

Þetta er klassískur matur sem er tilvalinn á sunnudagskvöldi. Uppskrift sem ég hef margoft gert og klikkar aldrei. Safaríkur heill kjúklingur hægeldaður með lauk, gulrótum, sítrónum og hvítlauk. Síðan verður soðið í botninum að silkimjúkri rjómasósu sem er einn besti parturinn. Fullkomið með ofnbökuðum kartöflum, fersku salati og köldu hvítvíni.