Okkur vantar oft hugmyndir af einhverju næringarríku og fljótlegu. Þessir bitar eru alveg ótrúlega einfaldir og það tekur enga stund að útbúa þá. Þeir eru sérlega góðir í nestiboxið eða á morgunverðarborðið. Þeir geymast vel í loftþéttu boxi í kæli, eru lífrænir, hveitilausir og fara einstaklega vel í maga. Þeir eru ekki dísætir en það má auka við eða draga úr sætumagni ef vill. Lífræna hlynsírópið frá Rapunzel er dásamlegt í bakstur og auðvitað alveg ljómandi gott með pönnukökum eða vöfflum. Það er einnig stórgott að setja nokkra dropa í kaffið en þessir bitar eru einmitt alveg sérlega góðir með rjúkandi heitum kaffibolla.
Uppskrift
Hráefni
Leiðbeiningar
Hitið ofninn í 180°C blástur.
Afhýðið eplið og skerið í grófa bita. Takið ¼ bolla af höfrunum og setjið til hliðar. Setjið eplið ásamt restinni af innihaldsefnunum í blandara og vinnið þar til þetta er orðið að jöfnu deigi. Bætið þá restinni af höfrunum út í deigið og hrærið varlega saman við.
Setjið bökunarpappír í lítið form, ég notaði form sem er 20x20cm. Hellið deiginu í formið og stráið örlitlu af haframjöli yfir. Bakið í 25-30 mín. Takið formið út og kælið í nokkrar mínútur. Takið þá kökuna úr forminu með því að taka upp bréfið og setjið á kæligrind. Skerið í 9 bita þegar kakan er orðin köld.
Setjið helminginn af bláberjunum í pott ásamt hlynsírópi, vatni og sítrónusafa. Kveikið undir pottinum og látið berin malla í ca. 5 mín og kremjið þau með sleif á meðan.
Þegar þetta er orðið að grófu mauki bætið þið restinni af bláberjunum saman við og hitið upp.
Berið fram með hafrabitunum.
Uppskrift eftir Völlu á GRGS.is