Bragðgóður einfaldur kjúklingaréttur með hunangs- og sinnepsmarineringu.

Uppskrift
Hráefni
700 g kjúklingalæri frá Rose Poultry
4 tsk sætt sinnep frá HEINZ
2 msk hunang
1 tsk salt
4 msk ólífuolía
2 msk þurrkað timían
Leiðbeiningar
1
Blandið öllum hráefnum að kjúklingnum frátöldum saman í skál og hrærið vel saman.
2
Setjið kjúklinginn í poka með rennilási og hellið marineringunni saman við og nuddið henni vel í kjúklinginn. Marinerið í ísskáp eins lengi og tíminn leyfir (gott að útbúa kvöldinu áður).
3
Setjið í ofnfast mót og eldið við 190°c í 35-40 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
Uppskrift frá GRGS.
MatreiðslaKjúklingaréttirTegundÍslenskt
Hráefni
700 g kjúklingalæri frá Rose Poultry
4 tsk sætt sinnep frá HEINZ
2 msk hunang
1 tsk salt
4 msk ólífuolía
2 msk þurrkað timían