Stökkir kjúklinganaggar.

Uppskrift
Hráefni
Marinering
3 dl súrmjólk
3 hvítlauksrif, pressuð
Naggar
500 g kjúklingalundir frá Rose Poultry
3 dl Panko rask
2 msk paprikukrydd
1 tsk salt
svartur pipar
3 eggjahvítur
Leiðbeiningar
1
Hrærið súrmjólk og hvítlauk saman. Skerið kjúklinginn niður í passlega bita og leggið í marineringuna. Marinerið í 30 mínútur eða lengur ef tími gefst.
2
Setjið rasp, paprikukrydd, salt og pipar saman í skál.
3
Setjið eggjahvítur í skál og pískið með gaffli.
4
Veltið kjúklingnum fyrst upp úr eggjahvítunum og því næst raspinu. Leggið á ofnplötu.
5
Ef þið hafið tíma setjið í kæli í 30 mínútur eða lengur.
6
Bakið í 180°c heitum ofni* í 30-35 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
7
Annar eldunarmöguleiki er að setja steikingarolíu (t.d. Wesson) í djúpa pönnu. Hita hana vel og djúpsteikja bitana.
Uppskrift frá GRGS.
MatreiðslaKjúklingaréttirTegundÍslenskt
Hráefni
Marinering
3 dl súrmjólk
3 hvítlauksrif, pressuð
Naggar
500 g kjúklingalundir frá Rose Poultry
3 dl Panko rask
2 msk paprikukrydd
1 tsk salt
svartur pipar
3 eggjahvítur