fbpx

Indverskur sætkartöflu- og blómkáls baunapottréttur með hýðishrísgrjónum – vegan

Það er bara komið að því, haustið handan við hornið, skólarnir að byrja og rútínan að taka við. Einhverjir dusta rykið af löngu gleymdum áramótaheitum og vetrarmaturinn fer hægt og rólega að taka yfir létt salöt og grillrétti. Pottréttir eins og þessi eru í algjöru uppáhaldi hjá mér. Ekki bara af því að hann er ótrúlega bragðgóður og eldar sig næstum sjálfur, heldur er þetta alveg ótrúlega ódýr réttur, næringarríkur og passar akkúrat inn í kjötlausu dagana þar sem hann er vegan. Ég tók reyndar saman hvað innihaldsefnin gætu kostað og í allan réttinn gæti það verið um 1500 krónur og þá er ennþá afgangur af nokkrum innihaldsefnum. Mér reiknast til að skammtarnir séu um 8 og er þetta því líklega með hagkvæmustu kostum sem hægt er að bjóða upp á í kvöldmat. Að auki frystist hann mjög vel og upplagt að setja afganga í frysti og taka síðar með í nesti.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 1 msk ólífuolía
 1 stk laukur
 3 stk cm bútur ferskt engifer
 4 stk hvítlauksrif
 2 tsk karrý
 1,50 tsk cummin
 2 tsk túrmerik
 1 tsk kóríanderduft
 1 stk sæt kartafla, um 500g
 400 g frosið blómkál, þiðið
 1 stk dós niðursoðnir tómatar frá Rapunzel
 1 stk dós niðursoðnar kjúklingabaunir frá Rapunzel
 450 g vatn
 2 msk grænmetiskraftur
 1 stk dós kókosmjólk frá Rapunzel
 1 tsk sjávarsalt
 Nýmalaður svartur pipar eftir smekk
 1 tsk Garam masala, má sleppa
 1 dl kasjúhnetur frá Rapunzel, þurrristaðar á pönnu
 Ferskt kóríander, má sleppa

Leiðbeiningar

1

Skerið laukinn, hitið olíu í þykkbotna potti og steikið laukinn í nokkrar mínútur eða þar til hann verður glær.

2

Afhýðið og skerið sætu kartöfluna í grófa bita. Setjið blómkálið í sigti og látið renna volgt vatn á það í smástund og setjið til hliðar.

3

Saxið engifer og hvítlauk og bætið við, kryddið með karrý, cummin, túrmeriki og kóríander og steikið saman í 1-2 mín, varist að brenna kryddið.

4

Setjið sætu kartöfluna og blómkálið saman við ásamt tómötum, kjúklingabaunum, vatni og grænmetiskrafti. Látið malla við miðlungshita í 20 mín.

5

Þegar sætu kartöflurnar eru að verða soðnar í gegn, bætið þá við kókosmjólkinni og sjóðið áfram í 10 mín.

6

Smakkið til með salti, pipar og garam masala ef vill.

7

Berið fram með fersku kóríander, ristuðum kasjúhnetum og hýðishrísgrjónum.

Matreiðsla, MatargerðMerking

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
Heimagert falafelFalafel er eitthvað sem flestir þekkja og hafa smakkað. Falafel eru bollur úr kjúklingabaunum sem eru einar af mínum uppáhaldsbaunum.…