Hunangs-sesam lax með Pak Choi salati og ristuðum möndlum.
⏱ 30 mín👥 2 manns
Hráefni
Hunangs sesam lax:
400 g Lax
1 msk Rowse hunang
1 msk Sesamolía
1 l ítið rif Hvítlaukur
½ tsk Engifermauk
2 tsk Ristuð sesamfræ
Pak choi salat með sesamdressingu:
30 g Möndlur
1 ½ msk Sojasósa La Choy
2 msk Púðursykur
2 msk Ólífuolía frá Filippo Berio
1 tsk Sesamolía
2 tsk Hrísgrjónaedik (eða lime safi)
2 msk Ristuð sesamfræ
60 g Íslenskt Pak Choi
60 g Agúrka
60 g Gulrætur
5 g Kóríander
1 stk Vorlaukur
Hrísgrjón frá Tilda
Leiðbeiningar
Stillið ofn á 180°C með blæstri.
Grófsaxið möndlur og ristið á heitri pönnu. Setjið ristuðu möndlurnar í skál og veltið upp úr 1 msk af sojasósu. Geymið.
Hrærið saman hunang, sesamolíu, 1 pressað hvítlauksrif og 0,5 tsk engifermauk (eða ferskan rifinn engifer).
Nuddið laxinn með smá olíu og saltið aðeins. Hitið olíu á pönnu við meðalháan hita og steikið laxinn í um 2,5 mín á kjöthliðinni. Færið laxinn í olíusmurt eldfast mót og smyrjið með hunangs-sesam marineringunni. Bakið laxinn í miðjum ofni í 6-8 mín og stráið sesamfræjum yfir laxinn þegar hann kemur úr ofninum.
Búið til salatdressinguna með því að hæra saman púðursykur, ólífuolíu, sesamolíu, hrísgrjónaedik, 0,5 msk sojasósu og ristuð sesamfræ.
Grófsaxið Pak Choi, skerið agúrku í bita og/eða þunna strimla, rífið gulrót og/eða skerið í þunna strimla, saxið kóríander og sneiðið vorlauk. Setjið all grænmetið saman í skál ásamt ristuðu möndlunum og veltið upp úr salatdressingunni. Smakkið til með salti.
Berið fram með hrísgrjónum.
Hunangs-sesam lax með Pak Choi salati
Hunangs-sesam lax með Pak Choi salati og ristuðum möndlum.