Einföld asísk kjúklingaspjót.

Uppskrift
Hráefni
800 g kjúklingalæri frá Rose Poultry
1 dl hunang frá Jakobsens
50 ml soyasósa frá Blue dragon
50 ml vatn
Leiðbeiningar
1
Skerið kjúklingalærin í bita.
2
Hitið hunang, soyasósu og vatn saman í potti við vægan hita. Látið malla í 10 mínútur eða þar til sósan hefur þykknað.
3
Þræðið kjúkling upp á litla teina eða klippið þá til þannig að þeir komist fyrir á pönnu.
4
Hellið sósunni á pönnuna og hitið við vægan hita. Veltið kjúklinginum í sósunni á meðan kjúklingurinn eldast eða í um 8-10 mínútur.
5
Takið kjúklingaspjótin af pönnunni og hellið afgangs sósunni yfir kjúklinginn.
Uppskrift frá GRGS.
MatreiðslaKjúklingaréttirTegundAsískt
Hráefni
800 g kjúklingalæri frá Rose Poultry
1 dl hunang frá Jakobsens
50 ml soyasósa frá Blue dragon
50 ml vatn