fbpx

Súkkulaðimús með saltaðri karamellu

Hér kemur undursamleg súkkulaðimús með karamellu og rjóma, toppuð á Hrekkjavökulegan máta!

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Súkkulaðimús
 200 g dökkt súkkulaði
 50 g smjör
 2 stk egg
 250 ml þeyttur rjómi
Saltkaramella
 180 g Werther´s Original saltkaramellur (mjúkar)
 6 msk rjómi
Rjómi og toppur
 300 ml þeyttur rjómi
 15 stk Oreo kex
 Trolli hlaup augu
 Trolli hlaup ormar
 Sykuraugu

Leiðbeiningar

Súkkulaðimús
1

Bræðið súkkulaði og smjör saman í vatnsbaði og leyfið hitanum aðeins að rjúka úr.

2

Pískið eggin og bætið saman við súkkulaðiblönduna í nokkrum skömmtum, blandið/pískið vel saman.

3

Setjið um 1/3 af þeytta rjómanum saman við og vefjið saman við súkkulaðiblönduna með sleikju. Bætið þá restinni af rjómanum saman við og blandið þar til slétt áferð hefur myndast.

4

Hellið músinni í glös og kælið á meðan annað er undirbúið.

Saltkaramella
5

Hitið saman í potti þar til fljótandi karamella hefur myndast.
Leyfið aðeins að kólna áður en þið setjið væna matskeið af karamellu ofan á hverja súkkulaðimús.

Rjómi og toppur
6

Skerið Oreokex til helminga með beittum hníf.

7

Setjið síðan um 5 Oreokex í blandara og blandið þar til fín mylsna hefur myndast (gott að nota hér kexin sem brotnuðu við skurðinn ef einhver slík eru til staðar).

8

Sprautið nú þeyttum rjóma yfir karamelluna á hverri mús, stráið Oreomylsnu yfir allt og toppið með ýmist augu og ormum eða tveimur hálfum Oreokexum og sykuraugum fyrir leðurblöku.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir