Print Options:








Hollar heslihnetukúlur

Magn1 skammtur

Hollar heslihnetukúlur með appelsínusúkkulaði hjúp.

 200 gr döðlur frá Rapunzel
 150 ml sjóðandi vatn
 40 gr cashew hnetur frá Rapunzel
 40 gr heslihnetur frá Rapunzel
 100 gr möndlumjöl frá Rapunzel
 2 msk kókosolía (hituð örlítið svo verði fljótandi) frá Rapunzel
 2 msk heslihnetusmjör frá Rapunzel
 1 tsk vanilludropar
 ½ tsk salt
 160 gr (tvær plötur) Rapunzel appelsínusúkkulaði (til að dýfa í)
1

Hellið sjóðandi vatni yfir döðlurnar og leyfið að standa í 30 mínútur.

2

Setjið hneturnar í blandara/matvinnsluvél og blandið saman við möndlumjölið, leggið til hliðar.

3

Hellið mesta vatninu af döðlunum og setjið í blandara/matvinnsluvél.

4

Blandið kókosolíu, heslihnetusmjöri og vanilludropum saman við döðlurnar.

5

Því næst fer salt í blönduna og að lokum möndlu- og hnetublandan.

6

Ef notaður er blandari gæti þurft að hnoða saman með höndunum á þessum tímapunkti en matvinnsluvél ætti að ráða við þetta allt saman.

7

Plastið skálina og geymið blönduna í kæli í amk 1 klst.

8

Mótið þá kúlur c.a 1 msk hver og raðið saman á bökunarpappír

9

Frystið í um 15 mínútur og hjúpið svo með appelsínusúkkulaði.