Kjúklingabrauðstangir á grillið, snilld fyrir krakkana.
Breyttu fjöldanum og hráefnin reiknast sjálfkrafa um.
Blandið saman sinnepi, cayenne pipar, papriku og olíu. Hellið marineringunni yfir kjúklinginn, gott að láta standa í kæli í 2-3 klst.
Skerið pizzudeig í strimla og rúllið upp með kjúklingalundunum.
Grillið á hvorri hlið í 3-5 mínútur og látið hvíla á efri grind í 2 mínútur þar til kjúklingurinn hefur náð fullri eldun.
Penslið með hvítlauksolíu og stráið saxaðri steinselju yfir ásamt grófu sjávarsalti.
Stofnaðu frían aðgang og haltu utan um uppskriftirnar sem þú hefur prófað og langar að prófa.
Deildu þinni girnilegu útkomu og merktu @gerumdaginngirnilegan á Instagram eða TikTok - við elskum að sjá hvað þið búið til!