Grænmetis lasagna með sveppum, spínati og vel af osti.
⏱ 55 mín👨🍳 Miðlungs👥 4 manns
Hráefni
Fersk lasagna blöð
500 g sveppir
1 rauðlaukur
1 msk ólífuolía frá Filippo Berio
70 g tómatpúrra
450 ml einföld pastasósa
1 dós hakkaðir tómatar
100 g spínat
250 g kotasæla
Rifinn mosarella ostur (mjög gott að kaupa rúllu af mosarella og rífa hálfa niður)
1 msk þurrkað oreganó
1 ½ tsk þurrkað basil
1 tsk þurrkað timjan
½ tsk þurrkað rautt chillí
½ tsk salt
½ tsk pipa
Leiðbeiningar
Kveikið á ofninum og stillið á 200ºC.
Skerið sveppina niður í bita, þannig að áferðin líkist grófu hakki. Steikið þá á þurri pönnu á meðal heitri pönnu og setjið klípu af salti yfir. Fljótlega byrjar vökvi að koma út úr sveppunum.
Skerið rauðlaukinn smátt niður og setjið út á pönnuna með sveppunum ásamt ólífuolíu og steikið þar til vökvinn af sveppunum hefur gufað upp.
Setjið því næst er tómatpúrru bætt á pönnuna, pastasósu og hökkuðum tómötum. Kryddið með oreganó, basil, timjan, chilli, salti og pipar. Steikið áfram á pönnunni í um það bil 10 mín eða þar til sósan er orðin þykk og kraftmikil.
Setjið þunnt lag af sósu í botninn og setjið lasagna blöð yfir sósuna. Setjið 2-3 msk af kotasælu yfir, ásamt spínati og rifnum mosarella. Endurtakið þessi skref 2-3x og toppið með rifnum mosarella.
Bakið inn í ofni í 20 mín. Leyfið lasagnanu að taka sig í 10 mín áður en það er skorið.
Grænmetis lasagna
Grænmetis lasagna með sveppum, spínati og vel af osti.